Það er vinsæll samkvæmisleikur áhugafólks um bókmenntir að giska á hvaða höfundur hreppir Nóbelsverðlaunin ár hvert. Fréttastofa heimsótti Einar Björn Magnússon, bóksala í Vesturbæ Reykjavíkur, og fylgdist með þegar verðlaunin voru tilkynnt í morgun.„Ég vona að Anne Carson, kanadíska skáldið sem er líka með íslenskan ríkisborgararétt, vinni,“ sagði Einar Björn rétt áður en verðlaunahafinn var tilkynntur. Hann var að vonum ánægður þegar Anne hreppti hnossið. „Þetta er svona eins og þegar liðið manns vinnur heimsmeistaramót í fótbolta,“ sagði Einar Björn.„Hún var bara hérna í búðinni í síðustu viku. Mjög gaman að hafa fengið Nóbelshöfund í búðina.“