Mikil og góð kornuppskera á Suðurlandi

Það er nóg að gera hjá kornbændum þessa dagana, eins og á bænum Hvammi í Ölfusi, en þar er korn ræktað á um 24 hekturum og er nánast búið að slá og þreskja alla akrana og koma korninu í völsun fyrir veturinn og í góða geymslu áður en kýrnar á bænum fá það með í fóðrinu sínu. Um 70 mjólkurkýr eru í Hvammi.„Já, þetta er alveg stórglæsilegt, við erum mjög ánægð með kornið. Það besta við það er að við erum að afla okkur eigin fóðurs, það er náttúrulega alveg stórkostlegt, svo fáum við smá bónus með hálminn fyrir kálfana,” segir Charlotte Clausen bóndi í Hvammi.Splunkuný þreskivél, sem er í eigu Flókorns, sem er í eigu nokkurra kornbænda í Flóanum, sér um þreskingu á kornökrunum í Hvammi.„Ég held að það sé metár hjá okkur í ár í korninu. Ég þakka það góða veðrið og góðri ræktun svo erum við nát
Mikil og góð kornuppskera á Suðurlandi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd