Halla Bára Gestsdóttir innanhússhönnuður heldur áfram að gleðja sælkera með girnilegum uppskriftum. Að þessu sinni býður hún upp á óvenjulega súkkulaðiköku þar sem Coca-Cola og rjómaostur leika stórt hlutverk. Kakan er einstaklega mjúk, með fallegu marmaramynstri, pekanhnetum, kókosflögum og hvítu súkkulaði sem gefur henni skemmtilega áferð og bragð.