Ákveðið hefur verið að aflýsa eða fresta viðburðum í tilefni árlegrar MR-VÍ viku vegna skrílsláta sem upp komu á fótboltaleik skólanna tveggja í gær. Rektor MR segir atburðinn varpa skugga á skólasamfélagið í heild. KJAFTSHÖGG, ÖLVUN OG HRÁKI Á KAPPLEIK Sólveig Guðrún Hannesdóttir, rektor Menntaskólans í Reykjavík, segir fréttir af knattspyrnuleik nemenda MR og Verslunarskóla Íslands sem fram fór á Vivaldi-vellinum á Seltjarnarnesi í gærkvöld mikil vonbrigði.„Hegðun sem þar átti sér stað fór langt út fyrir þau mörk sem hægt er að sætta sig við og átti ekkert skylt við þá virðingu, íþróttamennsku og ábyrgð sem við væntum af nemendum okkar,“ segir í pósti sem Sólveig sendi á foreldra og forráðamenn í dag.Mikill hiti var á leiknum og þurfti lögregla að hafa afskipti af nemendum. Kjaftshögg