Ísafjarðarbær leiðir hönnun og byggingu nýs verknámshúss í stað ríkisins

Bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar og mennta- og barnamálaráðherra undirrituðu í gær viljayfirlýsingu um stækkun verknámshúss Menntaskólans á Ísafirði. Stækkunin hefur verið lengi í bígerð en nú er gert ráð fyrir að sveitarfélagið leiði framkvæmdirnar.„Viljayfirlýsingin snýr að því að það verði Ísafjarðarbær sem muni leiða hönnun og byggingu hússins en að það verði ekki á höndum ríkisins í gegnum framkvæmdasýslu ríkisins,“ segir Gylfi Ólafsson, bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar.Í apríl 2024 undirrituðu ráðuneyti og sveitarfélag samning um slíka viðbyggingu. Síðan þá hafa verið gerðar verkfræðilegar úttektir á mögulegri staðsetningu og núverandi aðstöðu. „Að öðru leyti hefur málið ekki þokast,“ bætir Gylfi við.Aðspurður segir Gylfi sveitarfélagið að vissu leyti betur í stakk búið að fylgja verkefninu úr
Ísafjarðarbær leiðir hönnun og byggingu nýs verknámshúss í stað ríkisins

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd