Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambands Íslands, segir samkomulag VR og Fagfélaganna við Samtök atvinnulífsins ekki hafa skilað launafólki neinu umfram það sem Breiðfylkingin hafi þegar náð fram. Hann gagnrýnir framgöngu Höllu Gunnarsdóttur, formanns VR, harðlega í færslu á Facebook og kallar atburðarásina „leikrit“ og „fjölmiðlasirkus“. „Ég vil tryggja að launafólk haldi ekki að þetta leikrit hafi skilað einhverjum árangri umfram það...