Landsréttur hefur staðfest dóm Héraðsdóms um 16 ára fangelsi yfir Margréti Höllu Hansdóttur Löf, fyrir að hafa ráðið föður sínum bana á heimili þeirra í apríl í fyrra og líkamsárás gagnvart móður sinni. Kröfu hálfbróður Margrétar um að hún yrði gerð arflaus var vísað frá dómi, en henni hefur verið gert að greiða honum miskabætur.Dómur var kveðinn upp við Landsrétt í dag og hefur verið birtur. Vísir greindi fyrst frá. DÆMD Í 16 ÁRA FANGELSI Í DESEMBER Í desember í fyrra dæmdi Héraðsdómur Reykjaness Margréti Löf til 16 ára fangelsisvistar fyrir að verða föður sínum að bana og fyrir stórfellda líkamsárás gagnvart móður sinni á heimili þeirra að Súlunesi í Garðabæ í apríl 2025. Dómnum var áfrýjað í janúar.Samkvæmt ákæru beitti Margrét föður sinn margþættu og alvarlegu ofbeldi í aðdraganda a