„Hún er bráðskemmtilegur húmoristi, írónísk og snjöll,“ segir Einar Falur Ingólfsson um Nóbelsverðlaunahafann Anne Carson. Einar Falur þekkir Carsons ágætlega og hefur hann t.a.m. þýtt verk eftir hana.Einar er fyrrum menningarritstjóri Morgunblaðsins. Hann kynntist Anne fyrst árið 2009 þegar hann tók viðtal við hana fyrir Morgunblaðið. Þá hafði Anne dvalið um nokkurt skeið í Stykkishólmi ásamt eiginmanni sínum.„Anne hefur aldrei verið mikið í sviðsljósinu en hún féllst á viðtal 2009. Ég tók mynd af henni þá sem Anne benti síðan alltaf fjölmiðlum á að nota og hún var notuð í mörg, mörg ár, einhver svört portrett-mynd.“ VIRKUR ÞÁTTTAKANDI Í MENNINGARLÍFINU Í REYKJAVÍK Anne og maðurinn hennar dvöldu mikið til á Íslandi í Covid, fengu ekki að fara aftur til Bandaríkjanna og urðu því hálfger