Bilun í símkerfi hefur víðtæk áhrif í Noregi

Umfangsmikil bilun er í norska farsímakerfinu. Vegna bilunarinnar getur reynst erfitt fyrir almenning að ná sambandi við neyðarnúmer viðbragðsaðila.Bilunin hefur einnig haft mikil áhrif á lestarsamgöngur um allt land. Lestir hafa verið stöðvaðar vegna þess að ekki er hægt að tryggja örugg samskipti við viðbragðsaðila ef upp koma neyðartilfelli.Upplýsingafulltrúi Telenor segir ekkert benda til þess að netárás hafi verið gerð á símkerfi fyrirtækisins.RÚV
Bilun í símkerfi hefur víðtæk áhrif í Noregi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd