Karl Ágúst Þorbergsson skrifar:Um þessar mundir er verið að sýna verkið Gunnella í Tjarnarbíói. Verkið er runnið undan rifjum leikkonunnar Kötlu Þórudóttur Njálsdóttur og var fyrst frumsýnt fyrir nokkrum árum sem einstaklingsverkefni hennar á leikarabraut Listaháskóla Íslands. Eftir að Katla útskrifaðist var það sýnt stuttlega í sumarleikhúsinu Aftur á móti og er nú komið á fjalir Tjarnarbíós.Sýningin veitir okkur innsýn í líf Gunnellu, leikinnar af Kötlu, sem er 41 árs, þýðandi og einstæðingur. Í upphafi sýningarinnar birtist hún sem frekar kómísk týpa, nánast trúðsleg, þar sem hún reynir en tekst eiginlega ekki að syngja með Óbyggðirnar kalla eða dilla sér við Pamelu með Dúkkulísunum. Hún fær síðan heimsókn Friðriks, sem Aron Már Ólafsson leikur, og það kemur í ljós að hann er frá ættlei