Staðfesta fyrsta dauðsfallið vegna ebólu í Kenía

Yfirvöld í Kenía hafa staðfest fyrsta dauðsfallið vegna ebólu-smits. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin staðfestir að tilfellið sé það fyrsta sem greinist af Bundibugyo-afbrigði ebólu í Kenía.Kenískur ríkisborgari sem hafði verið búsettur í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó í sjö ár, er talinn hafa smitast af afbrigðinu í Kongó.Maðurinn ferðaðist landleiðina frá Kongó til Kampala í Úganda 2. október og flaug þaðan til Naíróbí, höfuðborgar Keníu, daginn eftir. Hann var fluttur á sjúkrahús skömmu eftir komuna og settur í einangrun. Hann lést 5. október. HÁTT Í ÞRJÁTÍU Í SÓTTKVÍ Hátt í þrjátíu manns, fjölskyldumeðlimir hins látna og heilbrigðisstarfsfólk, hafa nú verið sett í sóttkví. Yfirvöld leita auk þess að farþegum og áhafnarmeðlimum sem voru með manninum í flugi frá Kampala til Naíróbí.Yfir 4.000
Staðfesta fyrsta dauðsfallið vegna ebólu í Kenía

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd