Stefán Magnússon veitingamaður hefur verið dæmdur til 15 mánaða fangelsisvistar og greiðslu 200,7 milljóna króna sektar í Landsrétti, fyrir að hafa svikið undan skatti á árunum 2020 til 2023 þegar hann var framkvæmdastjóri og stjórnarmaður tveggja félaga, annars vegar Steikar ehf. og hins vegar Gourmet ehf. Félögin ráku veitingastaðina Reykjavík Meat og Sjáland, sem báðum hefur verið lokað.