„Þegar menn ná ekki saman þýðir það ekki að menn hafi engu spilað út“

Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir ekki rétt að samtökin hafi ekki komið til móts við VR, LÍV og fagfélögin í kjaraviðræðum líkt og formaður VR hefur haldið fram. Samninganefndir beggja aðila funda í Húsi atvinnulífsins. VILDI EKKI GEFA UPP EFNI FUNDARINS Bjarni Benediktsson framkvæmdastjóri SA vildi ekki gefa upp hvað verði rætt á fundi Samtaka atvinnulífsins með VR, LÍV og Fagfélögunum. Fréttastofa náði tali af honum fyrir fundinn, sem nú stendur yfir.„Það er efni fundarins, hvað það verður. Við ætlum að fá tíðindi af þeirra fundum sömuleiðis. Það liggur auðvitað fyrir að einhverjir fundir hafa verið með stjórnvöldum og við höfum tekið þátt í þeim fundum frá því í vor. Og þeir skipta máli í heildarsamhenginu. Þeir gætu hafa liðkað eitthvað fyrir aðilunum. Við verðum að láta
„Þegar menn ná ekki saman þýðir það ekki að menn hafi engu spilað út“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd