Hringborð norðurslóða, þing Arctic circle hefst í Hörpu í dag. Þar verða um 200 málstofur og um 700 ræðumenn. Meðal annars verður fjallað um áform Bandaríkjanna á norðurslóðum, völd frumbyggja og nýtt geimkapphlaup.Meðal þess sem er á dagskrá. Í dag ræða Anita Anand, utanríkisráðherra Kanada og Múte B. Egede, utanríkisráðherra Grænlands framtíðina í pallborði.Katrín Jakobsdóttir er erindreki Hringborðs norðurslóða.„Ég held nú að það séu ástæður fyrir því að þetta er stærsta norðurskautsráðstefna í heimi. Hingað koma hátt í 2.500 manns til að ræða málin og það eru auðvitað margar ástæður fyrir því,“ segir Katrín.„Loftslagsbreytingar eru að verða hér á þessu svæði hraðar en annars staðar í heiminum.“Umhverfismálin í heild séu mjög áberandi í dagskrá þingsins. FULLTRÚAR FRÁ 75 LÖNDUM „Það