Hljómsveitin SúEllen sendi nýverið frá sér nýja útgáfu af lagi Bubba Morthens, Foxtrot.Í kringum 70 ára afmæli Bubba Morthens voru Gummi söngvari og Óli Palli á Rás 2 að spjalla saman í síma um eitt og annað, meðal annars um Bubba. „Það var eiginlega Óli sem gaukaði að okkur þeirri hugmynd að endurgera og gefa út Bubbalag,“ segir Gummi. „Við stukkum á hugmyndina og fórum í hljóðver og Óli Palli spilaði með okkur á gítar í laginu sem við völdum.“Ein helsta ástæða þess að SúEllen var stofnuð var rokkbyltingin mikla sem átti sér stað upp úr 1980 á Íslandi þar sem Bubbi Morthens stóð í stafni. „Með þessari útgáfu tökum við hattana okkar ofan fyrir Bubba Morthens og þökkum honum fyrir að hafa komið okkur út í bílskúr á sínum tíma.