„Það er stormur í dag“

Formaður VR segir að stéttarfélagið og fagfélögin hafi teygt sig langt nú þegar í kjaraviðræðum við Samtök atvinnulífsins. Nú velti framhaldið á samtökunum. „VIÐ ERUM MEÐ KJARASAMNINGSUPPSAGNIRNAR Í SKOTTINU“ Halla Gunnarsdóttir, formaður VR og fulltrúar fagfélaganna áttu fund með forsætisráðherra í ráðherrabústaðnum í hádeginu. Fundi lauk fyrir rúmum hálftíma og ræddi Halla þá stuttlega við fréttamenn fyrir utan. Hún segir fundinn hafa verið góðan.„Forsætisráðherra hefur verið að beita sér fyrir því að reyna að höggva á hnútinn í þessari deilu. Hún er búin að teygja sig eins langt og hún getur. Nú er næsta skref að fara upp til Samtaka atvinnulífsins og eiga orð við þau,“ sagði Halla.Hún segist ekki geta tjáð sig um hvað ríkisstjórnin sé að bjóða til að liðka fyrir að samningar haldi.
„Það er stormur í dag“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd