Erlendir ferðamenn sem heimsóttu baðlón í heimsókn sinni til landsins hafa fengið falskt jákvætt í skimun eftir sprengiefnum eða hættulegum efnum á Keflavíkurflugvelli. Ferðamaður sem var á leið um landið fyrir skömmu vakti máls á þessu í hóp á Facebook sem telur hátt í 500 þúsund meðlimi.Talsverð umræða skapaðist um málið og sögðust fleiri hafa lent í því sama. Sama umræða hefur komið upp á fleiri samfélagsmiðlum, til að mynda Reddit.Skimun eftir sprengiefnum (ETD-skimun) er aukaskimun sem farþegar eru valdir í handahófskennt, að lokinni öryggisleit og vegabréfaskoðun. Hvað er ETD-skimun? * Í flug- og ferðaþjónustu stendur ETD fyrir Explosive Trace Detection, eða greining á sprengiefnaleifum. * ETD-skimun er í daglegu tali kölluð sprengiefnaleit eða skimun eftir sprengiefnum. * Skimun