Fulltrúar VR, LÍV og Fagfélaganna funduðu með forsætisráðherra í ráðherrabústaðnum klukkan 13 í dag og héldu þaðan nú fyrir skömmu. Áfangastaðurinn er skrifstofa Samtaka atvinnulífsins við Borgartún þar sem fara á í lokasamtal um hvort samið verði um framlengingu kjarasamninga eða þeim verði sagt upp.