Formlegar viðræður eru hafnar milli Samfylkingarinnar og óháðra og Framsóknar og óháðra um myndun nýs meirihluta í bæjarstjórn Suðurnesjabæjar. Fréttastofa greindi frá því í gær að óformleg samtöl væru hafin milli fulltrúa flokkanna. Nú eru þeir komnir í formlegar samningaviðræður. Greint er frá þessu á Facebook-síðu Framsóknar í Suðurnesjabæ. Þar segir að viðræðurnar gangi vel og að ekki sé málefnalegur ágreiningur á milli framboðanna tveggja.Flokkarnir ætla að leitast eftir því að Alexandra Jóhannesdóttir verði áfram bæjarstjóri ef þeir mynda meirihluta. Ef af því verður gæti nýtt meirihlutasamstarf verið undirritað um komandi helgi.Meirihluti Samfylkingar og óháðra og Sjálfstæðisflokks og óháðra sprakk um helgina eftir fjögurra mánaða samstarf.