Stjörnutríóið Björk Jakobsdóttir, Salka Sól Eyfeld og Selma Björnsdóttir snýr aftur á svið í Gaflaraleikhúsinu í framhaldssýningu þar sem þær opna sig á gátt um áskoranir lífsins. Björk segir ýmislegt hafa breyst á milli sýninga, aðallega það að nú sé Selma á breytingaskeiði, Salka að drukkna úr uppeldiskvíða og hún sjálf sé komin með annan fótinn í gröfina. Þá fái elskhugar þeirra útreið í sýningunni, maklega þó.