Dularfull sótt er sögð komin upp í Irktusk-héraðinu í Síberíu þar sem tæplega þrítugur starfsmaður á rannsóknarstofu sóttvarnastofnunar lést á sjúkrahúsi sem engum var hleypt inn eða út úr í fjóra daga á eftir. Bæjarbúar eru kvíðnir en halda ró sinni á meðan yfirvöld þegja þunnu hljóði.