Anne Carson er kanadískt ljóðskáld, rithöfundur, þýðandi og sérfræðingur í klassískum fræðum sem búsett er á Íslandi. Hún hefur ræktað tengsl við íslenskt bókmenntasamfélag, hefur tekið þátt í bókmenntahátíð í Reykjavík og hlaut Vigdísarverðlaunin árið 2023.Anne Patricia Carson var fædd í Toronto í Kanada árið 1950 og ólst upp í nokkrum smábæjum í Kanada. Ung að árum fékk hún fékk áhuga á bókmenntum og tungumálum.Hún nam klassísk fræði við háskólann í Toronto og útskrifaðist með doktorspróf þaðan árið 1981. Hún hefur einnig stundað nám í grískum bragarháttum í Skotlandi.Öðrum þræði er hún fræðimaður á sviði menningar Forn-Grikkja og klassískra bókmennta. En auk fræðastarfsins er hún virtur höfundur og þekkt fyrir djörfung og nýjungagirni í höfundaverki sínu. Henni hefur tekist að skapa nýj