Á fundi Seðlabankans miðvikudaginn 7. október, þegar sagt var frá ákvörðun peningastefnunefndar um að halda stýrivöxtum óbreyttum í 8%, var ítarlega fjallað um launaþróun hér á landi og hún borin saman við launaþróun erlendis. Þar kom fram að bæði nafnlaun og raunlaun hafa hækkað mun meira hér en til dæmis á öðrum Norðurlöndum.Launakostnaður á hverja unna stund er jafnframt sá mesti í Evrópu ef launatengd gjöld eru tekin með.Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri lagði mikla áherslu á að ekki væru forsendur til að hækka laun hér umfram það sem samið hefur verið um.„Það er ekki þannig að við á Íslandi höfum fundið upp einhverja gullgerðarvél, þannig að við getum einhvern veginn verið á öðrum ferli en aðrar þjóðir,“ sagði hann. > „Eins og staðan er núna þá er kannski mesti ábatinn fyrir heimilin í