Sólveig Guðrún Hannesdóttir, rektor Menntaskólans í Reykjavík, segir ömurlegt að kappleikur milli Verzlunarskólans og Menntaskólans í Reykjavík hafi farið úr böndunum í gær.„Þetta voru leiðindafréttir í morgun og ömurlegt að svona hegðun setji svip sinn á viðburð þar sem hundruð nemenda hegðuðu sér vel.“Kjaftshögg, hráki og ölvun eru á meðal þeirra orða sem notuð eru í dagbók lögreglu á kappleik Verzlunarskólans og Menntaskólans í Reykjavík í gær. Skólarnir öttu kappi í fótboltaleik sem fór fram á Vivaldi-vellinum á Seltjarnarnesi í gær.Leikurinn var hluti af árlegri VÍ – MR-viku skólanna þar sem keppt er í ýmsu á milli skólanna. MIKIÐ UM ÖLVUN Á VIÐBURÐINUM Sólveig og Guðrún Inga Sívertsen, skólastjóri Versló, hafa átt í samskiptum í dag. Þær vinna nú að því að afla upplýsinga um hvað