Viðvörunarbjöllur þögguðu niður í Daða Má

Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, flutti ræðu á fjármálaráðstefnu sveitarfélaga í morgun en henni lauk með öðrum hætti en fólk hafði séð fyrir sér. Daði Már var búinn að fjalla um fjármál ríkis og sveitarfélaga og ræða hvernig vinna mætti að ýmsum málum. Hann hafði nýlokið því að leggja mikla áherslu á góð samskipti ríkis og sveitarfélaga þegar viðvörunarbjöllurnar fóru í gang.Í nokkra stund varð ekki fundarfært fyrir háværum bjöllunum. Eftir um það bil einnar og hálfrar mínútu bið, og nokkurn hlátur úr salnum, tók Daði Már aftur til máls og sagðist hafa fengið þær fréttir að allt væri í góðu. „Þetta sé hvorki verk forystu Sambands íslenskra sveitarfélaga til að losna við mig af sviðinu né merki um neina katastrófu en mín orð áttu ekkert að verða fleiri þannig að ég þa
Viðvörunarbjöllur þögguðu niður í Daða Má

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd