Frakkland logar í mótmælum

Á milli 250 og 500 þúsund manns, fyrst og fremst menntskælingar og stuðningsfólk þeirra, ekki síst foreldrar þeirra og  háskólastúdentar, mótmæltu víða um Frakkland á þriðjudag og kröfðust betri aðbúnaðar í framhaldsskólum. Þetta voru fjölmennustu mótmælin frá því að ungmenni byrjuðu að loka aðgangi að menntaskólum um miðjan september.Lokuðu skólarnir skipta nú hundruðum og enn sér ekki fyrir endann á þessum fjölmennu mótmælum, sem hófust sem stuðningsaðgerð við kennara í einum skóla en eru löngu farin að teygja sig langt út fyrir skólakerfið. Þannig freistaði fjöldi ungmenna þess í gær að loka Saint-Germain-breiðgötunni í hjarta Parísar með götuvígjum, en lögregla brást við af hörku eins og undanfarna daga og sparaði hvorki kylfurnar né táragasið þegar hún ruddi götuna að mestu. STÓRSLÖ
Frakkland logar í mótmælum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd