Karlmaður sem ákærður er fyrir manndráp af gáleysi eftir banaslys á Lækjargötu í september 2023 sagðist fyrir dómi í dag hafa talið sig aka með gaffla skotbómulyftara í um 20 sentimetra hæð þegar slysið varð. Rannsókn lögreglu bendir hins vegar til þess að gafflarnir hafi verið mun hærra frá jörðu.