Anne Carson hlýtur Nóbelsverðlaunin í bókmenntum – Íslendingar eignast annan verðlaunahafa

Kanadíski rithöfundurinn Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels í ár. Hún býr að hluta til á Íslandi og hlaut íslenskan ríkisborgararétt árið 2022.Ingrid Carlberg greindi frá vali Nóbelsnefndarinnar á blaðamannafundi sem hófst klukkan 11.Verðlaunin eru veitt Carson fyrir djörfung og nýjungagirni í höfundarverki sínu. Með glettnu samtali við hina klassísku hefð hafi henni tekist að skapa nýja tegund samtímabókmennta.Anne Carson er fædd í Toronto í Kanada 1950. Hún lauk doktorsprófi í klassískum fræðum frá Háskólanum í Toronto 1981 og hefur á ferli sínum kennt við ýmsa háskóla samhliða ljóðaskrifum og þýðingarvinnu.Meðal þekktustu verka Carson eru Eros the Bittersweet frá 1986, sem er endurskrifuð útgáfa af doktorsritgerð hennar, Plainwater frá 1995, Autobiography of Red frá 1998 og The
Anne Carson hlýtur Nóbelsverðlaunin í bókmenntum – Íslendingar eignast annan verðlaunahafa

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd