Vetrarhappdrætti Blindrafélagsins er farið af stað og að venju eru fjölmargir veglegir vinningar í boði. Á bak við happdrættið er þó stærra markmið. Með kaupum á miða styður almenningur við fjölbreytt starf Blindrafélagsins og hjálpar félaginu að skapa blindu og sjónskertu fólki á öllum aldri tækifæri til þátttöku, hreyfingar, félagslífs og samveru.