Í það minnsta 12 voru drepnir og 14 særðust þegar Rússar réðust á rútu í Kramatorsk nærri víglínunni í austanverðri Úkraínu.Saksóknari í héraðinu greindi frá mannfallinu. Hann sagði enn hættu á að árásin hefði kostað fleira fólk lífið og ekki væri loku fyrir það skotið að fleiri hefðu særst en fyrstu upplýsingar herma.Stjórnvöld í Suður-Kóreu greindu frá því í dag að þau hyggist kalla sendiherra sinn í Úkraínu heim frá Kiyv. Þetta gera þau vegna mikillar og vaxandi spennu í samskiptum ríkjanna vegna uppljóstrana Úkraínumanna um norðurkóreska stríðsfanga sem voru fluttir til Suður-Kóreu.Utanríkisráðuneyti Suður-Kóreu sagði að þrátt fyrir að sendiherrann væri kallaður heim væri það von þeirra að deilur ríkjanna leystust á vinsamlegan hátt.