Þegar haustið færist yfir og dagarnir styttast fara margir að huga að ferðalögum vetrarins og vorsins. Úrval sérferða Úrval Útsýnar hefur sjaldan verið fjölbreyttara og í vetur geta ferðalangar meðal annars valið um ævintýraferðir til Filippseyja, Suður-Afríku og Kákasus, siglingar um Miðjarðarhafið og Dóná og notalega aðventusiglingu um Rín og Main.