„Það stendur til að segja upp samningum í dag. Það hefur ekkert gerst frá því að stjórn fundaði í gærkvöldi og þar til núna sem gefur okkur tilefni til annars,“ sagði Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, í morgunútvarpinu á Rás 2.„Þetta er auðvitað mjög alvarleg staða sem er komin upp og við erum alveg djúpstætt leið yfir því að hafa ekki náð merkingarbærara samtali við Samtök atvinnulífsins til að brúa það mjög svo litla bil sem er á milli okkar.“Halla sagði ábyrgðina á því að samkomulag hefði ekki náðst liggja hjá Samtökum atvinnulífsins sem hefðu bæði hafnað tillögum VR og ekki komið með neinar móttillögur.„Það er ofboðslega erfitt að vera í svona samningaviðræðum þegar maður er einn í þeim.“Hún sagði að VR hefði lagt til launaauka, eingreiðslur, réttindakerfi og forsenduákvæði en engu hef