Það er erfitt að muna fullt nafn á Borgarleikhússtjóra. Hann heitir ekki bara þremur nöfnum, Egill Heiðar Anton, heldur er hann líka Pálsson og með eftirnafn móður sinnar, Gonçalves de Silva.Móðir Egils er frá Kanaríeyjum. „Hún er frá Las Palmas, ég er frá tveimur eldfjallaeyjum á sama Atlantshafshryggnum,“ segir hann í viðtali hjá Gísla Marteini í Plús einum á Rás 2. PORTÚGÖLSK ÁSTARSAGA Gonçalves er portúgalskt nafn og þaðan komu langafi og langamma Egils.„Það er nefnilega þannig að langafi minn rændi langömmu minni. Hann var tvítugur og hún var fjórtán ára. Hún var aðalsstelpa á Mardeira og hann var bara alþýðudrengur. Þau voru ástfangin og hann rændi henni í skjóli nætur og þau flúðu til Kanaríeyja.“Langafi Egils byggði upp stórveldi með tvær tómar hendur og varð skipamiðlari.„Mamma