Kappleikur milli framhaldsskólanema fór úr böndunum

Einn fékk flösku í hausinn á kappleik milli tveggja framhaldsskóla í gær eða nótt og voru áverkar minniháttar.Í dagbók lögreglunnar segir að kappleikurinn hafi átt sér stað í Austurbæ, Vesturbæ, Miðborg eða á Seltjarnarnesi en ekki er tilgreint hvaða skólar öttu kappi.Mikið var um ölvun og ólæti milli fylkinga og blysum kastað sem lentu á nærstöddum. Átta lögreglumenn voru á staðnum þegar mest lét til að reyna að koma skikki á þennan hóp. Einhverjir fengu kjaftshögg og aðrir hráka á sig. Enginn gisti þó fangageymslur og ekki hafa verið lagðar fram kærur.Í sama umdæmi var maður handtekinn og vistaður í fangageymslu vegna rannsóknar á eignaspjöllum, sölu fíkniefna, vopnalagabroti og peningaþvætti.
Kappleikur milli framhaldsskólanema fór úr böndunum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd