Útflutningsverðmæti sjávarafurða nam þrjátíu og þremur milljörðum króna í september. Það er samdráttur sem nemur 7% miðað við sama tíma í fyrra.Töluverður samdráttur var í útflutningi á makríl á milli ára.RÚV / Rúnar Snær ReynissonFrá þessu greinir Radarinn, mælaborð sjávarútvegs og fiskeldis, sem Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi halda úti.Ein helsta ástæða þess að svo mikill munur mælist á milli ára má rekja til þess að í ár var minna flutt út af makríl. Af öllum heilfrystum fiski í september í fyrra stóð makríllinn fyrir 70% af útflutningsverðmæti en hefur dregist saman um 43% miðað við sama tíma í fyrra. Þá námu aflaheimildir í makríl um 130 þúsund tonnum en í ár voru þær aðeins um 31 þúsund tonn.