Veður- og loftslagsstofnun Sameinuðu þjóðanna varar við því að áhrif El Niño eigi enn eftir að aukast þar til þau ná hámarki í desember. Talið er að veðurfyrirbærið geti orðið það öflugasta í ár síðan 1950.Veður- og loftslagsstofnun Sameinuðu þjóðanna segir að hitastig eigi líklega eftir að mælast yfir meðallagi víða um heim, úrkomumynstur breytist og líkur á þurrkum og flóðum aukist á ólíkum svæðum.Spár gera ráð fyrir að yfirborðshitastig sjávar í Mið- og Austur-Kyrrahafi eigi eftir að ná methæð á næstu þremur mánuðum. Spárnar eru byggðar á samhljóðandi spám 13 helstu innlendu og alþjóðlegu veðurfræðistofnana. Þær gera einnig ráð fyrir að El Niño-áhrifa gæti fram í febrúar 2027.Yfirborðshitastig sjávar hækkaði úr 1,6 gráðum yfir meðallagi í júní til 2,5 gráðum yfir meðallagi í ágúst. Tali