Þrjú látin eftir árásir Húta á tvo flugvelli í Sádi-Arabíu

Yfirvöld í Sádí-Arabíu segja að þrír óbreyttir borgarar hafi verið drepin og að 36 hafi særst í árásum á tvo alþjóðaflugvelli sem Hútar hafa lýst ábyrgð á.Sádi-arabísk flugmálayfirvöld greindu frá því að árásir hefðu verið gerðar á Abha-alþjóðaflugvöll og King Khalid-alþjóðaflugvöll í höfuðborginni Ríad. Egypskur og alsírskur ríkisborgari létust í árásinni á Abha-flugvelli og súdanskur ríkisborgari á flugvellinum í Ríad. Hverjir eru þessir Hútar? Hútar, sem eru af zaidi-sjía-minnihlutanum, tóku að hópa sig saman á 10. áratug síðustu aldar. Hreyfingin dregur nafn sitt af stofnanda sínum, Hussein Badreddin al-Houthi. Þeir hafa náð stjórn á hluta Jemens og síðast á ströndinni við Rauðahaf. Þar er mikilvæg siglingaleið.Stjórnvöldum í Sádi-Arabíu hugnast illa að Hútar hafi náð stjórn á svæðum n
Þrjú látin eftir árásir Húta á tvo flugvelli í Sádi-Arabíu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd