Lögmaður Christu Pike segir að legið hafi við því að hún yrði tekin úr öndunarvél eftir að hún var lögð inn á spítala og áður en hún komst til meðvitundar.Mál Pike komst í hámæli á dögunum eftir að hún lifði af tvær aftökutilraunir með banvænni sprautu í Tennessee-ríki í Bandaríkjunum, en hún var á dauðadeild fyrir morð sem hún framdi þegar hún var átján ára, fyrir rúmum þrjátíu árum.Á mánudag var Randy Spivey lögmanni hennar gerð grein fyrir því að Pike væri heiladauð og að öndunarvél yrði tekin úr sambandi næsta dag en öllum að óvörum rankaði hún við sér áður en til þess kom. GETUR HVORKI KYNGT NÉ HREYFT HANDLEGGI Pike er handjárnuð við rúmið sitt en hún getur hvorki kyngt né hreyft handleggi sína sem eru bólgnir og brunnir eftir banvæna efnið pentóbarbítól sem sprautað var í þá. Beið