Vestnorrænir leiðtogar funduðu í fyrsta sinn

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra fundaði í dag með leiðtogum Færeyja og Grænlands sem eru staddir hér á landi á fyrsta fundi oddvita vestnorrænu landanna. Beinir Johannesen lögmaður Færeyja og Jens-Frederik Nielsen formaður landsstjórnar Grænlands funduðu einnig með fjárfestum um tækifæri á vestnorræna svæðinu.Þetta er fyrsta heimsókn leiðtoganna tveggja hingað til lands frá því að þeir tóku við embættum sínum. Nielsen sagði að nýlegur samningur við Bandaríkin um varnir Grænlands væri góður fyrir Grænland og NATO.„Nú lítum við á samninginn þar sem allir þrír aðilar virða hver annan, virða fullveldi hvers annars og samþykkja að gera meira í okkar heimshluta, gera það sem þarf í síbreytilegum heimi,“ segir Nielsen.
Vestnorrænir leiðtogar funduðu í fyrsta sinn

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd