Halla Gunnarsdóttir formaður VR segir að kjarasamningum félagsins verði sagt upp á morgun að öllu óbreyttu. Stjórn VR kom saman síðdegis í dag og lauk fundinum skömmu eftir klukkan átta í kvöld.Halla segir stjórnina hafa farið ítarlega yfir stöðuna og þá atburðarás sem hefur átt sér stað frá síðasta fundi hennar á mánudagskvöld. „Við komumst að þeirri einróma niðurstöðu að við hyggjumst segja upp kjarasamningum á morgun,“ segir Halla í samtali við fréttastofu.Stéttarfélögin hafa frest til klukkan fjögur síðdegis á morgun til að segja upp samningunum. Engar formlegar samningaviðræður fóru fram milli VR og Samtaka atvinnulífsins í kvöld en Halla ræddi þó við Bjarna Benediktsson, framkvæmdastjóra SA, í síma.Hún segir samtölin hafa verið góð og hreinskilin en að niðurstaða hafi ekki náðst. „Up