Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri segir ummæli sín um frumvarp stjórnvalda um leiguvernd hafa verið tekin úr samhengi að einhverju leyti.Ásgeir sagði í morgun að frumvarpið væri „augljóslega mjög heimskulegt“ en í Kastljósi í kvöld sagði hann Seðlabankann ekki hafa fengið frumvarpið til umsagnar.„Seðlabankinn hefur ekki fengið þetta frumvarp til umsagnar, þannig að ég var í sjálfu sér ekki að gefa umsögn um frumvarpið sem við höfum ekki skoðað,“ sagði Ásgeir. Aðspurður hvort hann hefði getað verið varfærnari í orðalagi svaraði hann að það væri mögulega rétt.Hann sagði þó almennt ekki rétta leið til að ná tökum á verðbólgu að beita boðum og bönnum.Þróun leiguverðs skipti Seðlabankann miklu máli og mikilvægt væri að aðgerðir stjórnvalda leiddu ekki til hækkunar leiguverðs. Hann sagði bankann s