Erik Brynjolfsson er einn kunnasti hagfræðingur Bandaríkjanna þegar kemur að mati á efnahags- og félagslegum áhrifum gervigreindar á vinnumarkað. Hann er prófessor við Stanford-háskóla auk þess að stýra tengdum stofnunum sem sérhæfa sig í rannsóknum á efnahagslegum áhrifum gervigreindar og innleiðingu hennar. Erik fullyrðir að mannkyn hafi aldrei upplifað jafn hraða þróun nokkurrar tækni eins og gervigreindar og full ástæða sé til að vera á varðbergi gagnvart þessari öru þróun.Erik Brynjolfsson er af íslenskum ættum, sonur Ara Brynjólfssonar eðlisfræðings frá Akureyri, en Ari hefði orðið 100 ára á þessu ári. Ari ólst upp á Krossanesi við Akureyri, gekk menntaveginn, lærði við Niels Bohr-stofnunina í Danmörku og tók þátt í að senda fyrsta mannaða geimfarið til tunglsins á vegum NASA, bandar