Eldur kviknaði í rafmagnshlaupahjóli á stigagangi

Eldur kviknaði í rafmagnshlaupahjóli á stigagangi í JL-húsinu við enda Hringbrautar. Talsverður eldur kom upp og mikill reykur myndaðist í framhaldinu. Unnið er að því að reykræsta húsnæðið. Þetta segir Stefán Már Kristinsson, varðstjóri slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við fréttastofu.„Ég geri sterklega ráð fyrir því að rafmagnshlaupahjólið hafi verið í hleðslu,“ segir Stefán. Að sögn Stefáns er algengt að mikill reykur myndist úr rafmagnsbruna.Þrjár starfsstöðvar slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu voru ræstar út að Hringbraut. Stefán segir að stöðin að Skarhólabraut í Mosfellsbæ hafi ekki verið kölluð til.Einn var fluttur á slysadeild vegna hugsanlegra einkenna reykeitrunar.Fréttin hefur verið uppfærð.
Eldur kviknaði í rafmagnshlaupahjóli á stigagangi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd