Formaður grænlensku landstjórnarinnar segir það svekkjandi að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kúlusúk á Austur-Grænlandi yfir vetrartímann enda hafi flugleiðin reynst vel upp á ferðamennsku og fraktflutninga á ferskvöru. Hann segir að landstjórnin leiti nú leiða til þess að tryggja flug að svæðinu á ný.