Bilun er í ljósastaurum víða um borgina. Vegagerðin segir að tilkynnt hafi verið um bilanir á Sæbraut og Miklubraut og að unnið sé að viðgerðum. Vegagerðin ber þó einungis ábyrgð á stofnbrautum en fjöldi ábendinga hefur borist til fréttastofu að ljósastaurar virki ekki sem skildi í nokkrum mismunandi hverfum. Að sögn Vegagerðarinnar er ekki vitað hvað olli biluninni.