Kennarasamband Íslands kynnti í dag tillögur að stefnumótun til framtíðar í menntamálum, Blásum byr í seglin, og þau verkefni sem ráðast þarf í til að styrkja íslenskt skólastarf til framtíðar. Kennarasamband Íslands vill hefja vinnu við að leggja grunn að menntastefnu til ársins 2036. Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ, sagði að kallað væri eftir víðtæku samtali við alla sem koma að skólum landsins, á öllum skólastigum.Í tillögum KÍ er meðal annars áhersla á að efla læsi, lesskilning og námsgagnagerð, fjölbreyttar námsleiðir og öfluga kennarastétt. Sambandið hyggst ekki koma með öll svörin að borðinu. Í stað skyndilausna þurfi skýra langtímasýn. BIRTA TÖLFRÆÐI TIL AÐ SKÝRA RAUNVERULEGA STÖÐU Mjöll Matthíasdóttir, formaður Félags grunnskólakennara, segir örar breytingar innan skólakerfisin