Kötturinn Dreki fer ránshendi um Vesturbæinn í Reykjavík, tekur ýmislegt ófrjálsri hendi - en sinnir líka hreinsunarstörfum.„Hann er þjófóttur kisi. Honum finnst mjög gaman að fara í þvottahús í hverfinu og stela sokkum, stela nærfötum. Alls konar litlum hlutum sem hann finnur og er góð lykt af,“ segir Freyja Kristinsdóttir eigandi Dreka.„Svo finnst honum ægilega gaman að fara í fjöruna. Þar tínir hann prik og steina og allskyns rusl. Hann er ruslasafnari, hann er svona „hoarder“.“ BYRJAÐI SMÁTT OG FÆRÐI SIG SVO UPP Á SKAFTIÐ Í byrjun var þjófnaður Dreka smár í sniðum. „Hann byrjaði að koma inn um gluggann með strá í munninum og allskonar lítið. Svo varð það stærra og stærra. Ég kom einhverntímann heim, hérna inn um hurðina, og sé lögregluteip liggja meðfram gólfinu. Ég var alveg: hvað