Laganemar við Háskóla Íslands veita um þessar mundir ókeypis lögfræðiaðstoð auk þess sem þeir halda úti svokallaðri leigjendalínu. Formaður Orators segir starfið gefandi, enda frískandi að prófa eitthvað nýtt á milli þess sem menn sitja yfir bókum. Fólk hringi inn með alls konar vandamál; sumir kvarti vegna erfiðra leigusala og einn innhringjandi hafi haft samband þegar sambýliskonan reyndist vera gift öðrum manni.