Gunnar Theodór Eggertsson skrifar:La Gradiva / Spor í öskunniLeikstjóri: Marine AtlanMyndin hlaut verðlaun gagnrýnenda á Cannes og Gullna lundann á RIFF, aðalverðlaun hátíðarinnar, sem veitt eru fyrir fyrsta eða annað verk leikstjóra. Hér segir frá ungmennum sem eru í skólaferðalagi frá Frakklandi til Ítalíu, á söguslóðir Pompeii, og myndin fylgir þeim eftir í fáeina daga.Við kynnumst ólíkum týpum, fyrst yfirborðslega, en síðan jafnt og þétt skefur myndin ofan af aðalpersónunum og við sjáum glitta í kjarnann í hverju þeirra, sem ungmennin fela annars fyrir hinum í hópnum. Þau standa öll á krossgötum – eru að klára skólann og sækja um framhaldsnám, hvert og eitt spennt að vita hvar og hvort þau komist inn – og óljósri framtíð þeirra er stillt upp í stóra samhenginu við örlög Pompeii fyrir t