Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis vegna neyslu lyfja tók gildi í dag.Neysla lyfja ökumanna verður að vera í samræmi við fyrirmæli læknis og á grundvelli ávísunar.Samkvæmt reglugerðinni er styrkleiki efna í blóði umreiknaður svo að hann samsvari magni 0,5% vínanda í blóði.Markmið reglugerðarinnar er að geta mælt fyrir um, með hlutlægum hætti, hvenær ökumenn á lyfseðilsskyldum lyfjum teljast ekki geta stjórnað ökutæki með öruggum hætti. RÁÐUNEYTIÐ ÁFRAM MEÐ MÁLIÐ TIL SKOÐUNAR Í tilkynningu frá Innviðaráðuneytinu segir að þar verði málið áfram til skoðunar og metið hvort tilefni sé til frekari breytinga.Sambærileg reglugerð er í gildi í Noregi.Ökumönnum ber eftir sem áður ætíð að gæta að eigin ökuhæfni, sbr. 2. mgr. 48. gr. umferðarlaga og að þeir séu færir um að stjórna viðkom